Höfðingleg gjöf

Fyrir skömmu barst Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins og Sveinsprófsnefnd sterkstraums, höfðingleg gjöf frá Rafport ehf. Um er að ræða 22 töfluskápa sem notaðir verða við sveinspróf í rafvirkjun.10 skápar verða settir upp hjá VMA á Akureyri og 12 skápar hafa verið settir upp í aðstöðu sveinsprófsnefndar að Stórhöfða 27. 


Meðfylgjandi mynd var tekin af eigendum Rafport ásamt fulltrúa sveinsprófsnefndar þegar formlega var tekið við skápunum.


Á myndinni eru; Helgi Eiríksson, Ólafur Sigurðsson, Jón Þór Guðjónsson og Guðjón M. Jónsson