I. Almennt
Samtök rafverktaka (hér eftir „SART“ eða „samtökin“) eru samtök fyrirtækja í rafiðnaði. Þrátt fyrir að upplýsingar og gögn sem samtökin vinna varði að stærstum hluta lögaðila er ákveðinn hluti sem telst til persónuupplýsinga. Þessi persónuverndarstefna lýsir með hvaða hætti vinnsla persónuupplýsinga skal fara fram innan SART til að uppfylla kröfur samtakanna um vernd gagna sem og lagalegar skuldbindingar um vernd persónuupplýsinga.
Persónuvernd þín skiptir SART miklu máli. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum. Stefnan er aðgengileg á heimasíðu SART. Einnig fá nýir félagsmenn tækifæri til að kynna sér persónuverndarstefnuna þegar þeir ganga í samtökin.
II. Persónuverndarlöggjöf
Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma. Lögin taka m.a. á vinnslu, vörslu og miðlun persónuupplýsinga.
III. Ábyrgð
SART bera ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi sinni. SART, með skráða skrifstofu í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík, eru löglegir stjórnendur persónuupplýsinganna sem þú veitir samtökunum. Hægt er að hafa samband við skrifstofu samtakanna með því að senda skriflega fyrirspurn á sart@si.is.
IV. Söfnun og notkun persónuupplýsinga
Við skráningu í SART óska samtökin eftir nafni, kennitölu, netfangi og símanúmeri forsvarsmanns fyrirsvarsmanns. Eftir atvikum er óskað eftir upplýsingum um fjármálastjóra og mannauðsstjóra fyrirtækis, sé þess þörf. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar vegna skráningar þess í félagatali SART, s.s. til að tryggja samskipti við fulltrúa innan fyrirtækis, til að svara fyrirspurnum þínum og bregðast við óskum þínum eða athugasemdum og til að fulltrúar fyrirtækja geti nýtt kosningarétt í samræmi við samþykktir samtakanna. Slík söfnun á persónuupplýsingum byggist á samkomulagi aðila um aðild að samtökunum og er nauðsynlegt til að samtökin geti veitt umbeðna þjónustu. Söfnun og vinnsla skal þó ekki ganga lengra en þörf er á hverju sinni. SART afla þessara upplýsinga í trausti þess að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi fengið samþykki frá hlutaðeigandi starfsmönnum fyrir vinnslunni og hafi vakið athygli þeirra á persónuverndarstefnu þessari.
Persónuupplýsingar þínar eru einnig notaðar af SART þegar samtökin senda út fréttabréf samtakanna og þegar sendur er út tölvupóstur til þín með efni sem kann að vekja hjá þér áhuga, t.d. fréttir um viðburði á vettvangi samtakanna, ráðstefnur, málstofur, félagsfundi eða sérstakar kynningar. Þá geta einstaklingar, sem ekki eiga aðild að SART, óskað eftir því að vera skráðir á póstlista samtakanna í sama tilgangi.
Ef þú kærir þig ekki um slíkar póstsendingar, eftir að hafa skráð þig á póstlista SART, skaltu senda tilkynningu þess eðlis á póstfangið sart@si.is.
SART nýta persónuupplýsingar þínar til að veita og bæta þjónustuna. Þú samþykkir söfnun og notkun upplýsinga í samræmi við þessa stefnu með því að nota þjónustu SART eða skráir upplýsingar um þig hjá samtökunum. Með því að veita SART persónuupplýsingar eftir að hafa kynnt þér persónuverndarstefnu samtakanna, samþykkir þú skilmála og skilyrði stefnunnar.
V. Miðlun
Rík áhersla er lögð á að varsla persónuupplýsinga sé ávallt með ábyrgum hætti. Persónuupplýsingar verða ekki aðgengilegar öðrum aðilum en starfsfólki SART og eftir atvikum þeim undirfélögum sem fyrirtæki þitt er aðili að. Allar upplýsingar sem þú afhendir starfsmönnum SART í trúnaði er ekki miðlað til annarra en þeirra starfsmanna samtakanna sem koma að verkefninu og eru allir þeir aðilar bundnir fullum trúnaði.
Við seljum, leigjum eða deilum aldrei persónuupplýsingum um þig. SART er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila sem er þjónustuveitandi eða verktaki á vegum samtakanna og þá í þeim tilgangi að ljúka við verkefni sem eru nauðsynleg vegna lögmætra hagsmuna SART, t.d. vegna kosninga til stjórnar SART, eða veita félagsmönnum þjónustu. SART afhendir vinnsluaðilum einungis þær persónuupplýsingar sem þykja nauðsynlegar til að ná framangreindum tilgangi. Þér er frjálst að hafna slíkri miðlun nema þar sem okkur er það skylt samkvæmt lögum eða í þeim tilvikum þar sem það telst nauðsynlegt til að hafa uppi eða verjast réttarkröfu. Þó er athygli þín vakin á því að allt efni sem þú birtir eða deilir á samfélagsmiðlasíðum okkar eru opinberar upplýsingar.
VI. Þriðju aðilar
Þjónusta SART og efni á heimasíðu samtakanna getur haft að geyma tengla á aðrar síður sem SART stjórna ekki. Smellir þú á tengil frá þriðja aðila, verður þér beint á síðu þess þriðja aðila. SART mæla eindregið með því að þú skoðir persónuverndarstefnu hverrar síðu sem þú heimsækir.
Persónuverndarstefnan nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða annarri vinnslu þeirra á persónuupplýsingum. Við hvetjum þig því eindregið til að kynna þér persónuverndarstefnu þeirra aðila sem þú heimsækir, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, t.d. hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Apple, Google og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.
VII. Verndun
SART leggja mikla áherslu á að vernda allar persónuupplýsingar. SART munu tilkynna þér án ótilhlýðilegrar tafar ef það kemur upp öryggisbrot er varðar persónuupplýsingarnar þínar og hefur í för með sér mikla áhættu fyrir þig. Með öryggisbroti er átt við brot á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.
Athygli þín er þó vakin á því að þú berð ábyrgð á persónuupplýsingum, t.d. nafni, kennitölu og mynd, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi. Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á internetinu er aldrei fullkomlega öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur hættu á að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.
VIII. Varðveisla
SART reynir eftir fremsta megni að halda persónuupplýsingum um þig nákvæmum og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum. Við varðveitum persónuupplýsingar um þig í að hámarki tvö ár frá úrsögn fyrirtækisins úr samtökunum nema þú hafir með samþykki þínu veitt okkur heimild til að varðveita þær lengur eða ef okkur er það nauðsynlegt til að uppfylla lagaskyldu eða gæta lögmætra hagsmuna. Aðrar persónuupplýsingar sem þú afhendir okkur skulu varðveittar að hámarki í 6 mánuði. Við munum fara yfir allar persónuupplýsingar reglulega og endurskoða hvort okkur sé heimilt að varðveita þær áfram. Ef við ákveðum að okkur sé ekki heimilt að varðveita þær áfram, munum við hætta allri vinnslu með persónuupplýsingarnar frá þeim tíma. Ef möguleiki er á að það kunni að vera þörf fyrir persónuupplýsingarnar síðar til að uppfylla lagaskyldur, t.d. gagnvart stjórnvöldum, eða til að höfða eða verjast réttarkröfu, munum við taka afrit af hlutaðeigandi persónuupplýsingum og varðveita þær á öruggu formi eins lengi og nauðsyn ber til.
IX. Réttindi þín
Þú átt rétt á og getur óskað eftir tilteknum upplýsingum með því að senda skriflega fyrirspurn á sart@si.is. Einstaklingar hafa rétt á að beina eftirfarandi fyrirspurnum til SART vegna skráningar samtakanna á upplýsingum:
a. að fá að vita hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig þær eru tilkomnar og fá aðgang að persónuupplýsingunum,
b. að fá upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar um þig séu unnar,
c. að persónuupplýsingar um þig séu uppfærðar og leiðréttar,
d. að persónuupplýsingum um þig sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita þær,
e. að andmæla og/eða takmarka hvernig persónuupplýsingar séu unnar,
f. að fá afhentar persónuupplýsingar sem þú hefur látið okkur í té eða að þær séu sendar beint til annars aðila með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra setja,
g. að afturkalla samþykki þitt til vinnslu þegar vinnsla byggist á þeirri heimild með sama hætti og þú gafst það eða með því að senda á okkur skriflega fyrirspurn,
h. að fá upplýsingar um hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, þ.m.t. gerð persónusniðs og um þau rök sem þar liggja að baki og einnig þýðingu og fyrirhugaðar afleiðingar slíkrar vinnslu.
Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar, þegar það á við, innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra gera, þ.m.t. vegna viðskiptaleyndarmála og hugverkaréttinda. Athygli er vakin á að innheimt er sérstakt ljósritunargjald ef farið er fram á fleiri en eitt afrit. Þér verður tilkynnt og gefin skýring á ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verða við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Þú getur kvartað til Persónuverndar ef við neitum að afhenda þér ákveðnar upplýsingar.
X. Breytingar á persónuverndarstefnu SART
Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. SART munu tilkynna um allar breytingar með því að birta nýja persónuverndarstefnu á heimasíðu samtakanna. Þér er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu SART. Þegar efnislegar breytingar eru gerðar sem kunna að hafa þó nokkur áhrif á réttindi þín munum við tilkynna sérstaklega um þær. Við tökum öllum athugasemdum um persónuverndarstefnuna fagnandi og hvetjum þig til að senda okkur fyrirspurn.
ATH samhliða inngöngu í SART ganga menn í SI og SA, persónuupplýsingar flæða þarna á milli samtaka í sameiginlegu félagakerfi.
Notkunarmælingar á vef - vafrakökur (e. browser cookies)
Umferð um vefsvæðið er mæld með Google Analytics en þær upplýsingar um notkun sem við höfum aðgang að eru ekki persónurekjanlegar. Tilgangur mælinganna er að afla almennra upplýsinga um notkun og þær eru aðeins aðgengilegar okkur sem nafnlausar fjöldatölur.