81 nemandi í sveinsprófi í rafiðngreinum

Dagana 4-12 júní standa yfir sveinspróf í rafiðngreinum undir umsjón Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins  og eru 81 nemandi skráður til leiks, þar af eru 10 rafveituvirkjar. Prófin fara fram í húsnæði Rafiðnaðarskólans að Stórhöfða 27 þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Á Akureyri eru 14 nemar sem þreyta prófið í húsakynnum VMA og í maí síðasliðnum voru 5 nemar sem luku sveinsprófi í rafeindavirkjun.