Vorhátíð FLR 2019
Fréttir
Fjölmenni var á vorhátíð FLR sem haldin var 29 maí sl.
Rafverktökum í FLR ásamt mökum var boðið í glæsilega veislu hjá Johann Rönning. Frábær matur, örugg og fumlaus veislustjórn Gísla Einarssonar ásamt frábærum tónlistarflutning Jóhönnu Guðrúnar og Davíðs Sigurgeirssonar settu góðan svip á kvöldið. Að borðhaldi loknu sá Blúsband JB um danstónlist eins og þeim einum er lagið.
Þetta kvöld verður lengi í minnum haft og eiga starfsmenn Rönning heiður skilinn fyrir góðan undirbúning og höfðinglegar móttökur.