Stefnumótun SART
Samtök rafverktaka, SART, efndu til stefnumótunar með félagsmönnum sínum á Hótel Keflavík dagana 8. og 9. október síðastliðna. Alls tóku 30 félagsmenn auk fulltrúa frá SI þátt í stefnumótunarvinnunni sem stýrt var af Arndísi Ósk Jónsdóttur frá Change Incorporated ehf.
Miklar og fjörugar umræður sköpuðust um verkefnin sem unnin voru og var einhugur meðal félagsmanna um mikilvægi þess að samtökin móti skarpa sýn á verkefni næstu ára. Þátttakendur í stefnumótuninni voru allt frá einyrkjum upp í fulltrúa fjölmennustu fyrirtækjanna innan SART.
Í lok fyrri stefnumótunardags var farið í skoðunarferð um Rokksafn Íslands í Hljómahöllinni og seinni stefnumótunardagurinn var tekinn snemma og lauk um hádegisbilið þegar fundarmenn héldu heim á leið.
Nokkuð er um liðið frá því að stefnumótun var síðast á dagskrá hjá Samtökum rafverktaka og bindur stjórn samtakanna miklar vonir við að niðurstaða þessarar vinnu verði góður vegvísir í starfsemi félagsins ti næstu ára.
Hjörleifur Stefánsson, formaður SART og Arndís Jónsdóttir ráðgjafi hjá Change Incorporated ehf
Jóhann Unnar Sigurðsson löggiltur rafverktaki hjá Elmax
Jóhann Emil Kolbeins, löggiltur rafverktaki hjá Securitas
Kristbjörn Óli Guðmundsson, löggiltur rafverktaki hjá Eðalraf
Ásmundur Einarsson rafeindavirkjameistari, Hjörleifur Stefánsson löggiltur rafverktaki hjá Nesraf og
Pétur Halldórsson, löggiltur rafverktaki hjá Raftækjasölunni
Hjörtur Sigurðsson framkvæmdastjóri VSB, Hjörleifur Stefánsson formaður SART og
Kristján Daníel Sigurbergsson framkvæmdastjóri SART
Aníta Guðbergsdóttir sá um leiðsögn um Rokksafni Íslands