Rafmennt festir kaup á nýjum kennslubúnaði
Nýlega fest RAFMENNT kaup á varmadælum og tengdum kennslubúnaði frá Rafstjórn ehf
Fyrirtækið Rafstjórn ehf sem er eitt af aðildarfyrirtækjum SART hefur verið eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins á þessu sviði til marga ára með sérhæfða þjónustu og innflutning á viðurkenndum vörumerkjum.
Með nýjum kennslubúnaði fyrir varmadælur fá þátttakendur á námskeiði um Varmadælur og kælitækni að læra allt sem kemur að uppsetningu á vélunum ásamt virkni þeirra og meðhöndlun á kælimiðli gagnvart umhverfinu.
Myndin hér að ofan var tekin þegar Erling Guðmundsson framkvæmdastjóri Rafstjórn ehf afhenti Þór Pálssynihjá RAFMENNT kennslubúnaðinn.