Aðalfundur Félags rafverktaka á Austurlandi haldinn á Egilsstöðum
Aðalfundur Félags rafverktaka á Austurlandi (FRA), sem er eitt af aðildarfélögum Samtaka rafverktaka (SART), var haldinn föstudaginn 6. febrúar á Gistihúsinu Lake Hótel Egilsstaðir. Fundurinn var sóttur af félagsmönnum.
Starfsemi og hagsmunagæsla í brennidepli
Hrafnkell Guðjónsson, formaður FRA, flutti skýrslu stjórnar þar sem hann fór yfir helstu verkefni liðins starfsárs. Þar kom fram að starfsemi félagsins hefði verið með svipuðum hætti og undanfarin ár, en áhersla lögð á virkt samtal innan stjórnar og öfluga þátttöku í starfi SART og Samtaka iðnaðarins.
Formaðurinn fór meðal annars yfir þátttöku FRA í aðalfundi og stjórnarfundum SART, stefnumótunarvinnu samtakanna og setu í Meistaradeild SI, þar sem fjallað er um málefni byggingageirans og regluverk hans. Þá var fjallað um mikilvægi þess að sjónarmið rafverktaka heyrist skýrt í vinnu stjórnvalda, meðal annars í tengslum við breytt byggingaeftirlit.
Áhersla á fagmennsku, menntun og réttindi
Á fundinum var einnig fjallað um áskoranir tengdar ólöglegri vinnu réttindalausra og mikilvægi þess að virða lögbundin starfsréttindi rafverktaka. Þá var greint frá góðri þátttöku í námskeiði um úttektir og mælingar sem FRA stóð fyrir á síðasta ári, sem og styrkveitingu til áframhaldandi námskeiðahalds á árinu 2026.
Formaður hvatti félagsmenn jafnframt til að nýta þá fjölbreyttu þjónustu sem Samtök iðnaðarins bjóða, meðal annars á sviði vinnuréttar, launamála og lögfræðiráðgjafar.
Stjórnarkjör og önnur mál
Reikningar félagsins fyrir síðasta starfsár voru lagðir fram og samþykktir án athugasemda. Engar breytingar voru gerðar á félagsgjöldum né lögum félagsins.
Við stjórnarkjör var Ómar Yngvason endurkjörinn gjaldkeri til þriggja ára og Heimir Gylfason kosinn varamaður til eins árs. Rétt kjörin stjórn FRA skipa því Hrafnkell Guðjónsson formaður, Helgi Ragnarsson ritari, Ómar Yngvason gjaldkeri og Heimir Gylfason varamaður. Þá var staðfest að Hrafnkell Guðjónsson situr áfram sem aðalmaður í stjórn SART, með Helga Ragnarsson sem varamann.
Sterk aðildarfélög lykill að öflugu starfi SART
Aðalfundur FRA undirstrikar mikilvægi öflugra aðildarfélaga SART um allt land. Með virkri þátttöku í stefnumótun, hagsmunagæslu og faglegri þróun styrkja rafverktakar á Austurlandi sameiginlegt starf greinarinnar og stuðla að betra rekstrarumhverfi fyrir iðnaðinn í heild.

Stjórn FRA skipa: Helgi Ragnarsson, ritari, Hrafnkell Guðjónsson, formaður, Heimir Gylfason, varamaður, Ómar yngvason, gjaldkeri


