Bilanagreinar efla verklega kennslu í rafiðngreinum á Ísafirði

Bilanagreinar efla verklega kennslu í rafiðngreinum á Ísafirði

Menntaskólinn á Ísafirði hefur fengið tvo bilanagreina að gjöf frá Félagi rafverktaka á Vestfjörðum (FRVF), með stuðningi Samtaka rafverktaka (SART) og fjölmargra fyrirtækja á svæðinu. Gjöfin, sem metin er á um 2 milljónir króna, er mikilvæg viðbót við aðstöðu til kennslu í rafiðngreinum og mun styrkja verklega færni nemenda og undirbúning þeirra fyrir atvinnulífið.

Samstarf atvinnulífs og skóla lykilatriði

Að gjöfinni standa fyrirtæki úr raforku- og tæknigeiranum á Vestfjörðum, þar á meðal Póllinn, Rafskaut, Rafverk AG, Eyfaraf, ÓK raf, Kalli Raf og Grundarorka, auk SART, Smith & Norland, Orkubús Vestfjarða, Verkís, Íslenska kalkþörungafélagsins og Ístækni. Verkefnið er skýrt dæmi um árangursríkt samstarf atvinnulífs og menntakerfis.

Sævar Óskarsson, formaður FRVF, rakti aðdraganda gjafarinnar og lagði áherslu á að búnaðurinn hefði verið valinn með þarfir nemenda í huga. Markmiðið væri að efla nám í rafiðngreinum og styðja við þá sem kjósa iðnnám. Hann benti jafnframt á að eftirspurn eftir rafvirkjum væri mikil og að vel menntaðir fagmenn væru eftirsóttir á vinnumarkaði.

Fjárfesting í færni og framtíð

Pétur H. Halldórsson, formaður SART, undirstrikaði að gjöfin væri ekki einungis tæknibúnaður heldur fjárfesting í framtíðinni. Með aðgengi að nútímalegum búnaði fá nemendur dýrmæta innsýn í fagið og betri undirbúning fyrir raunveruleg verkefni. Hann lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að efla samstarf atvinnulífs og skóla, sérstaklega á landsbyggðinni.

Heiðrún Tryggvadóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, þakkaði fyrir gjöfina og sagði hana skipta miklu máli fyrir starfsemi skólans og nemendur hans. Þá benti Elfar Ari Stefánsson, kennari í rafiðngreinum, á að stuðningur fyrirtækja hefði bein áhrif á áhuga nemenda og tengsl þeirra við atvinnulífið.

Styður við uppbyggingu iðnmenntunar

Eftirspurn eftir rafvirkjum hefur aukist verulega á undanförnum árum og ljóst að þörf er á öflugri uppbyggingu iðnmenntunar. Gjöfin til Menntaskólans á Ísafirði er mikilvægt framlag í þá átt og sýnir hvernig fyrirtæki geta lagt sitt af mörkum til að efla menntun og tryggja aðgengi að hæfu starfsfólki.

Framtak sem þetta endurspeglar mikilvægt hlutverk Samtaka rafverktaka og aðildarfélaga þeirra við að bæta rekstrarumhverfi rafiðnaðarins, styðja við menntun og efla tengsl milli skóla og atvinnulífs. Með markvissu samstarfi er lagður grunnur að sterkari rafiðnaði og aukinni verðmætasköpun um land allt.

Frá vinstri.  Vignir Örn Pálsson Grundarorku, Magnús Valsson Rafskaut, Elías Jónatansson Orkubú Vestfjarða, Sævar Óskarsson form FRVF / Póllinn, Albert Guðmundsson Rafverk AG, Einar Yngvason Rafskaut, Jóhann Bæring Gunnarsson Ístækni og Pétur Hákon Halldórsson form SART

 

Frá vinstri. Sævar Óskarsson form FRVF / Póllinn, Heiðrún Tryggvadóttir Skólameistari, Elvar Ari Stefánsson Kennari Rafiðngreina, Pétur Hákon Halldórsson form SART