Vinnustaðamenning

Hér er fjallað um mikilvægi þess að breyta hugsunarhætti og talsmáta á vinnustöðum, og mikilvægi þess að atvinnurekendur hafi skýra stefnu
gegn áreiti og einelti til að tryggja öryggi og vellíðan allra starfsmanna.

Fyrirmyndir

Hér er rætt um mikilvægi þess að ungar stúlkur hafi skýrar
fyrirmyndir í faginu og hvernig jafnvel lítil kynni af konum í rafiðnaði
geta haft gríðarleg áhrif á áhuga þeirra á greininni.

Sýnileiki

Hér er rætt um þá ábyrgð sem hvílir á fyrirtækjum að
gera störf kvenna sýnileg og hvernig sýnileiki, hvatning og það
að finnast maður velkominn getur fjölgað konum í rafiðnaði.

Fjölbreytni

Rætt er um hvernig blandaðir vinnustaðir bæta menningu,
auka umræðu og skila skilvirkari og arðbærari teymum.

Upptaka af allri ráðstefnunni, sem efnt var til undir yfirskriftinni Konur í rafiðnaði föstudaginn 6. mars á Grand Hótel Reykjavík, má finna hér að neðan.

Þátttakendur í dagskrá voru:
Ásthildur G. Guðlaugsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Kársnesskóla
Bergrós Bjarnadóttir, löggiltur rafverktaki hjá Neisti rafverktakar
Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Securitas
Guðrún Ýrr Tómasdóttir, skólastjóri Raftækniskólans
Helgi Rafnsson, framkvæmdastjóri Rafholts
Jarþrúður Þórarinsdóttir, rafmagnstæknifræðingur hjá Eflu
Jóhanna Bárðardóttir, kennari hjá Fjölbrautarskolanum í Breiðholti
Margrét Erlingsdóttir, rafvirki hjá Rafal
Snæfríður Þórisdóttir, rafvirkjanemi hjá Rafmiðlun
Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal, fundarstjórn