Breytingar á reglugerð um raforkuvirki
Mannvirkjastofnun vekur athygli á að 7. breyting á reglugerð um raforkuvirki nr. 678/2009 tók gildi þann 21. desember 2018, með birtingu reglugerðar nr. 1226/2018 á vef Stjórnartíðinda.
Með breytingunni eru settar fram þrjár nýjar skilgreiningar á hleðslustöðvum auk þess sem settar eru fram tæknilegar kröfur til hleðslustöðva og afhendingu háspennts rafmagns frá landi til skipa. Finna má samsetta, þ.e. með breytingum, reglugerð um raforkuvirki nr. 678/2009 uppfærða hér á heimasíðu Mannvirkjastofnunar.