Snjallir innviðir í brennidepli á haustráðstefnu Rafal
Haust ráðstefna Rafal fór fram þann 22. október síðastliðinn á Hringhellu 9 þar sem framtíð stafræna innviða var í aðalhlutverki. Fjölbreytt dagskrá var í boði fyrir gesti og flutt voru mjög áhugaverð erindi. Meðal gesta var Jóhann Páll óhannsson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra sem kom víða við í ávarpi sínu, vakti ráðstefnan góðar undirtektir meðal fagfólks í rafiðnaði..
Lifandi sófaspjall um framtíð innviðanna
Ráðstefnunni lauk með lifandi sófaspjalli þar sem rætt var um þróun snjallra innviða og hvernig stafræn tækni getur eflt orkugeirann. Umræðurnar leiddi Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og voru viðmælendur hans:
• Niemi Tiia, þjónustustjóri hjá Pori Energia í Finnlandi
• Valentin Keller, tæknilausnasérfræðingur hjá Akenza í Sviss
• Nína Lea Z. Jónsdóttir, sérfræðingur í stafrænum kerfum hjá Landsneti
• Sunna Björg Helgadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá HS Orku
Viðmælendur deildu innsýn í þau tækifæri og áskoranir sem felast í snjöllum lausnum, gagnadrifinni stjórnun og sjálfvirknivæðingu innviða, sem og hvernig alþjóðleg þróun hefur áhrif á íslenskan orku- og rafiðnað.
Mikilvægt að efla samvinnu og þekkingu
Samtök rafverktaka fagna því framtaki sem Rafal sýndi með skipulagningu ráðstefnunnar. Slíkir viðburðir gegna lykilhlutverki í að miðla þekkingu, tengja saman aðila úr ólíkum greinum og styðja við nýsköpun og tækniframfarir í þágu íslensks iðnaðar.
Rafal – öflugur aðili að nýsköpun og innviðauppbyggingu
Rafal er aðildarfyrirtæki að Samtökum rafverktaka (SART) og Samtökum iðnaðarins (SI), og hefur um árabil verið leiðandi í þróun og uppbyggingu raforkuinnviða á Íslandi. Fyrirtækið hefur yfir 40 ára reynslu í faginu og sérhæfir sig í hátæknilausnum fyrir orkuiðnaðinn, sveitarfélög og stóriðju. Með öflugri tæknideild og eigin framleiðslu tryggir Rafal lausnir sem mæta ströngustu kröfum um öryggi, gæði og sjálfbærni.
Sem öflugt teymi sérfræðinga vinnur Rafal markvisst að því að þróa snjalla, örugga og hagkvæma innviði sem styðja við sjálfbæra framtíð. Með aðild að SI og SART er Rafal hluti af víðtæku neti fyrirtækja sem vinna að því að efla íslenskan iðnað, bæta rekstrarskilyrði og stuðla að tækniframförum í samfélaginu.



