(+354) 591 0100Símanúmer
Borgartún 35Staðsetning

Fréttir

Stjórn Samtaka rafverktaka, SART, heimsótti Norðurál á Grundartanga

Stjórn Samtaka rafverktaka, SART, heimsótti Norðurál á Grundartanga

Stjórn Samtaka rafverktaka, SART, heimsótti Norðurál á Grundartanga föstudaginn 6. nóvember. Stjórnarmenn fengu þar góða kynningu á starfsemi fyrirtækisins. Að henni lokinni var farið í skoðunarferð um kerskála og steypuskála álversins.

Álverið á Grundartanga framleiðir rúmlega 300.000 tonn af áli á ári og hjá Norðuráli starfa yfir 700 manns. Útflutningsverðmæti fyrirtækisins nam rúmlega 101 milljarði króna árið 2025, eða um 11% af heildarútflutningsverðmætum Íslands það ár.

Eftirtalin tóku á móti stjórninni og kynntu starfsemi Norðuráls:

  • Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga
  • Fjalar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri kerskála
  • Baldur Bjarnason, framkvæmdastjóri tæknisviðs
  • Sigríður Harðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs

Í álveri af þessari stærð eru raforka og rafbúnaður undirstaða alls rekstrarins. Heimsóknin gaf stjórninni því dýrmæta innsýn í umfang og kröfur starfseminnar og í þau tækifæri sem þar eru fyrir rafiðnaðinn.

Stjórn SART þakkar Norðuráli kærlega fyrir höfðinglegar móttökur og fróðlega kynningu.

 


Samtök rafverktaka
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Sími 591 0100
Fax 591 0101
Kt. 420269-0729
[email protected]

Sterkari saman

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi.

Öryggi - Fagmennska

Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.