Aðalfundur Félags löggiltra rafverktaka (FLR) var haldinn þriðjudaginn 24. nóvember í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fundurinn hófst á kynningu Óskars Franks Guðmundssonar frá HMS á nýrri rafmagnsöryggisgátt stofnunarinnar, og svaraði hann jafnframt spurningum fundarmanna. Pétur Halldórsson, formaður Sart, stýrði fundinum.
Útboð og menntun
Jóhann Unnar Sigurðsson, formaður FLR, flutti skýrslu stjórnar. Hann sagði frá því að stjórnin hefur unnið að málum sem varða útboðsgögn og nýtt umsóknarform Veitna fyrir heimlagnir. Í fagráði Raftækniskólans var meðal annars rætt um aukinn áhuga á námi í rafvélavirkjun og mat á erlendu námi. Jóhann rifjaði einnig upp hátíðarkvöldverð Sart, viðburðinn „Konur í rafiðnaði“, sumarfagnað FLR hjá Tengli og haustferð til Climeworks, Tengils og Thor landeldis.
Ný stjórn
Reikningar félagsins fyrir árið 2025 voru samþykktir og félagsgjöld haldast óbreytt. Arnar Heiðarsson (Rafal) og Snorri Sturluson (SS-Raf) voru kjörnir meðstjórnendur til tveggja ára. Rúnar Kristjánsson (Tengill) og Kristján Sveinbjörnsson (Rafmagnsþjónustan) voru kjörnir varamenn til eins árs. Stjórn FLR 2026–2027 skipa Jóhann Unnar Sigurðsson formaður, Róbert Einarsson, Hafþór Ólason, Arnar Heiðarsson og Snorri Sturluson., og varamenn eru Rúnar Kristjánsson og Kristján Sveinbjörnsson
Hundrað ára afmæli 29. mars 2027
FLR fagnar aldarafmæli á næsta ári. Félagið var stofnað af fimm rafvirkjameisturum á skrifstofu Ormsson-bræðra á Óðinsgötu 25 í Reykjavík. Öll stjórnin situr í afmælisnefnd og Jóhann hvatti félagsmenn sem eiga gamlar ljósmyndir úr vinnunni eða sögur af meisturum sínum til að hafa samband við stjórnina, svo hægt verði að segja þær sögur á afmælisárinu.
Á myndinni hér að ofan eru: Kristján Sveinbjörnsson, Snorri Sturluson, Arnar Heiðarsson, Jóhann Unnar Sigurðsson, Hafþór Ólason og Róbert Einar Jensson


