FLR leggur áherslu á fagmennsku og réttindi rafverktaka
Aðalfundur Félags löggiltra rafverktaka (FLR) fór fram 6. nóvember 2024 í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn markaði lok viðburðaríks starfsárs þar sem áhersla var lögð á réttindi rafverktaka, menntun, öryggi og faglegt sjálfstæði.
Fjölbreytt verkefni og virkt félagsstarf
Á starfsárinu fundaði stjórn FLR átta sinnum og fjölmörg málefni voru tekin til umræðu, þar á meðal staða og réttindi rafvirkjameistara, öryggismál og samskipti við bæði Veitur og HMS. Í skýrslu formanns kom fram að félagsmenn hafi verið ötulir í að koma ábendingum á framfæri vegna réttindalausrar starfsemi og að nauðsynlegt sé að vekja áframhaldandi athygli á því máli.
Miklar umræður voru einnig um nauðsyn teikniréttinda rafvirkjameistara, aðgengi að útboðsgögnum og verklagsreglur um uppsetningu rafmagnsmæla og spennusetningar. FLR krefst skýrari ferla og samræmingar sem tryggja fagmennsku og öryggi í framkvæmdum.
Þátttaka í stefnumótun og faglegum umræðum
Félagið tók virkan þátt í stefnumótun Sart fyrir næstu fimm ár og var m.a. rætt um menntun, ábyrgð og stöðu iðngreina. Fundir voru haldnir í samstarfi við Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið um framtíð meistaranáms í rafvirkjun, og kallað eftir því að meistarar verði virkir þátttakendur í þeirri þróun.
Haldinn var fræðslufundur um framleiðslu og geymslu birtuorku og nýsköpun á því sviði, auk þess sem fundað var með Veitum og HMS vegna breytinga á verkferlum og samskiptum.
Kosningar í stjórn og staðfesting reikninga
Jóhann Unnar Sigurðsson var endurkjörinn formaður FLR til næstu tveggja ára. Auk þess sem kosið var um meðstjórnendur og varamenn.
Stjórn félagsins 2025-2026 skipa:
• Formaður: Jóhann Unnar Sigurðsson
• Meðstjórnendur: Arnar Heiðarsson, Hafþór Ólason, Kristján Sveinbjörnsson, Róbert Einar Jensson
• Varamenn: Snorri Sturluson og Rúnar Kristjánsson
Helgi Kolsöe og Lárus Andri Jónsson voru endurkjörnir sem skoðunarmenn reikninga. Ársreikningur félagsins var samþykktur samhljóða og engar breytingar lagðar til á félagsgjöldum eða samþykktum.
Áhersla á vandaða undirbúning og endurskoðun kerfa
Miklar áhyggjur voru lýstar af slökum árangri nemenda í sveinsprófum og var skorað á meistarana að leggja aukna áherslu á undirbúning nema. Árangur nema á sveinsprófi sýnir svart á hvítu mikilvægi sveinsprófa sem tæki atvinnulífsins til að tryggja rétta hæfni sveina. Þá var rætt um rekstrarumhverfi iðnfyrirtækja og álag sem veikindakostnaður veldur litlum fyrirtækjum. Félagið hvetur til umræðu um breytingar á lögum og reglum í ljósi þróunar á vinnumarkaði.
Aron Bjarnason frá Filmís kynnti Rafræn vinnustaðaskírteini frá Hverertu.is sem unnin voru að frumkvæði Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins



