Íslenska tölvufyrirtækið H. Árnason ehf. sem er jafnframt í SI, SART og FRT, var á dögunum veitt verðlaun og viðurkenningu frá Bandaríska fyrirtækinu Infosec, sem H. Árnason ehf. er aðili að, fyrir kröftuga og fullkomna Phishing þjálfunar áætlun.
Íslenska tölvufyrirtækið H. Árnason ehf. sem er jafnframt í SI, SART og FRT, var á dögunum veitt verðlaun og viðurkenningu frá Bandaríska fyrirtækinu Infosec, sem H. Árnason ehf. er aðili að, fyrir kröftuga og fullkomna Phishing þjálfunar áætlun.
Mikil ánægja var með góðar móttökur í kynningu sem Securitas hélt sl. föstudag fyrir félagsmenn SART
Jón Arnar Jónsson viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs og samstarfsmenn hans sögðu frá nýjungum en fyrst og fremst áttu menn gott spjall um vörur og þjónustu sem rafverktökum innan SART stendur til boða hjá Securitas.
Föstudaginn 11. október var farin árleg haustferð FLR.
Að þessu sinni var farið í uppsveitir Árnessýslu. Á Spóastöðum tók Þórarinn Þorfinnsson á móti hópnum og sýndi hópnum nýtt hátæknivætt fjós með 150 mjólkandi kúm.
Þaðan lá leiðin að Laugarási þar sem Jens Pétur Jóhannsson hjá Rafmagnsverkstæði Jens og Róberts, tók á móti hópnum af miklum myndarbrag.
Eftir góðar móttökur hjá Jens lá leiðin að Brúarárvirkjun þar sem skoðaðar voru framkvæmdir við 9,9 MW rennslisvirkjun í Tungufljóti undir leiðsögn Margeirs Ingólfssonar.
Undir lok ferðarinnar bauð Jón Þór Guðjónsson hópnum til kvöldverður á Hótel Geysi fyrirhönd Rafports ehf
Nú er búið að opna fyrir skráningu í hina vinsælu haustferð FLR
Haustferð FLR föstudaginn 11. Október
Mikilvægt er að skrá sig HÉR
Sl. föstudag bauð Míla félagsmönnum SART á kynningarfund um frágang á fjarskiptalögnum í nýbyggingum. Mikill áhugi var á kynningunni og var góð mæting af hálfu félagsmanna SART.
· Jón Ríkharð Kristjánsson framkvæmdastjóri Mílu kynnti Mílu og starfsemi fyrirtækisins
· Jónas Friðbertsson sérfræðingur hjá Mílu kynnti réttan frágangi á innanhússlögnum ljósleiðara í nýbyggingum.
Kynningarnar verða aðgengilegar á innri vef SART undir flipanum Kynningar.
Föstudaginn 20. september býður Míla félagsmenn SART velkomna á kynningarfund um frágang á fjarskiptalögnum í nýbyggingum.
Fundur hefst kl. 17:00 og stendur til kl. 19:00.
Samtök rafverktaka
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Sími 591 0100
Fax 591 0101
Kt. 420269-0729
sart@si.is
Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.