TEKNIQ og Dansk El-Forbund hafa gefið út framtíðarsýn til ársins 2025 Ísleifur Árni Jakobsson hefur þýtt þetta efni yfir á íslensku og er um mjög áhugaverða lesningu að ræða.
Mannvirkjaráð Samtaka iðnaðarins boðar til fundar um nýsamþykktar breytingar á lögum um mannvirki nr. 160/2010. Fundurinn er opinn félagsmönnum SI og er nauðsynlegt að skrá sig. Fundurinn verður haldinn í Kviku á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, miðvikudaginn 27. júní kl. 8.30-10.00. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.15.
Dagana 4-12 júní standa yfir sveinspróf í rafiðngreinum undir umsjón Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins og eru 81 nemandi skráður til leiks, þar af eru 10 rafveituvirkjar. Prófin fara fram í húsnæði Rafiðnaðarskólans að Stórhöfða 27 þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Á Akureyri eru 14 nemar sem þreyta prófið í húsakynnum VMA og í maí síðasliðnum voru 5 nemar sem luku sveinsprófi í rafeindavirkjun.
Fyrir skömmu barst Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins og Sveinsprófsnefnd sterkstraums, höfðingleg gjöf frá Rafport ehf. Um er að ræða 22 töfluskápa sem notaðir verða við sveinspróf í rafvirkjun.10 skápar verða settir upp hjá VMA á Akureyri og 12 skápar hafa verið settir upp í aðstöðu sveinsprófsnefndar að Stórhöfða 27.
Á heimasíðu Fagþingsins: www.fagthing.is má finna upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar, sýningu, hátíðarkvöldverð, gestadagskrá og fleira.
Í ársbyrjun ákváðu stjórnir Rafiðnaðarskólans og Fræðsluskrifstofunnar að auka formlegt samstarf milli félaganna undir heitinu RAFMENNT, fræðslusetur rafiðnaðarins.