Í vor átti stjórn FLR frumkvæði að því að settur var upp lokaður Facebook hópur með nafninu Félag löggiltra rafverktaka sem var eingöngu hugsaður fyrir félagsmenn FLR.
Þetta framtak hefur vakið verðskuldaða athygli og hafa borist beiðnir frá félagsmönnum SART utan FLR um aðgang að síðunni, þær umsóknir voru settar á bið en nú verður opnað fyrir þær.
Aðilar utan SART hafa einnig sýnt áhuga á að fá aðgang að hópnum en ekki hefur verið orðið við þeim óskum.
Að sögn Pétur Halldórssonar, formanns FLR og varaformanns SART, hefur stjórn FLR ákveðið að opna aðgang fyrir alla félagsmenn SART og verður nafni hópsins breytt í SART – FLR, Félag löggiltra rafverktaka
„Löggiltir rafverktakar innan okkar samtaka eru flestir að eiga við sömu áskoranirnar hvar sem þeir eru staddir á landinu og stjórn FLR vonast til að sem flestir félagsmenn SART muni notfæra sér þennan vettvang til að skiptast á hugmyndum og upplýsingum.“
Í vor gaf embætti landlæknis út leiðbeiningar til þeirra sem sinna þjónustu, eftirliti og viðgerðum á heimilum eða í fyrirtækjum. Þar kemur meðal annars fram gátlisti útsendra starfsmanna vegna COVID-19 og listað er upp hvað þarf að hafa í huga við störf á heimilum annarra eða í fyrirtækjum meðan farsótt geisar.
Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar Embættis landlæknis.
Aðalfundur SART haldinn var föstudaginn 5. júní á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Fyrir fundinn buðu heildsölurnar Johan Rönning, Reykjafell og Smith & Norland fundarmönnum í hádegisverð. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa flutti Árni Sigurjónsson, formaður S, ávarp og Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, flutti erindi Íslenska hagkerfið – Byggingar og mannvirkjagerð á tímum COVID-19. Einnig greindi Þór Pálsson, framkvæmdastjóri RAFMENNT, fundarmönnum frá starfseminni á síðastliðnu ári.
Samtök iðnaðarins hafa sent inn kæru til kærunefndar útboðsmála vegna samninga Reykjavíkurborgar við Orku náttúrunnar (ON) um rekstur, viðhald og LED-væðingu götulýsingar í Reykjavík.
Fram kemur í kærunni að SI telja að viðskipti borgarinnar við ON séu útboðsskyld og krefjast þess að samningurinn verði lýstur óvirkur og borginni verði gert skylt að bjóða innkaupin út. Þá segir að LED-væðingin feli í sér að skipta út lömpum til að fá betri ljósastýringu og minna viðhald en hver lampi á að borga sig upp á sex til sjö árum. Alls séu um 30 þúsund ljósastaurar í borginni og raforkan sé keypt af ON. Fleiri sveitarfélög á höfuðborgarsvðinu hafi ekki farið í útboð, en kæran beinist að borginni þar sem hún sé stærsta sveitarfélagið.
Jóhanna Klara Stefánsdóttir sviðsstjóri á mannvirkjasviðs SI segir málið þríþætt „Í fyrsta lagi teljum við það óeðlilegt að daglegt viðhald á búnaði sé ekki boðið út hjá Reykjavíkurborg en slíkt tíðkast annars staðar hér á landi og erlendis. Í öðru lagi viljum við að þessi einskiptisaðgerð sem LED-væðingin er verði boðin út, enda er um að ræða verkefni sem atvinnulífið getur vel sinnt. Í þriðja lagi skiljum við ekki hvernig hægt er að færa rök fyrir því að þessi verkefni endi á borði Orku náttúrunnar án útboðs.“
Frérr á vef Fréttablaðsins
Frétt á vef SI
Ágætu félagsmenn SART
Nú á dögunum á fundi stjórnar SART var samþykkt einróma tillaga frá stjórn FLR, að fella niður félagsgjöld SART í einn mánuð, vegna Corona faraldursins, sem kemur víða hart niður á félagsmönnum okkar. Vildum við með því gefa gott fordæmi og reyna létta undir með félagsmönnum
Við skoruðum einnig á stjórn SI, að fara að okkar fordæmi og frumkvæði og fella niður gjöld SI tímabundið vegna þessa óvenjulega ástands.
Það er frá því að segja að stjórn SI, hafði þegar tekið ákvörðun um að bregðast við með afsláttum á félagssgjöldum, þegar okkar bréf barst til þeirra, og því ber að fagna.
Við í stjórn FLR vonumst til að þetta muni hjálpa einhverjum og vonum um leið að þetta ástand, sem corona faraldurinn er búinn að skapa muni ekki vera til frambúðar
Bestu kveðjur
Pétur H Halldórsson formaður FLR
Helgi Rafnsson varaformaður FLR
Verkfæragjald reiknast sem 6% af tímakaupi í dagvinnu frá 1. apríl 2020 og greiðist sama fjárhæð fyrri alla unna tíma. Orlofslaun eru greidd á verkfæragjald. Tilgreina skal verkfæragjald sérstakleg á launaseðli.
Heimilt er atvinnurekanda að semja um að hann leggi til verkfæri samkvæmt verkfæraskrá og falla þá verkfærapeningar niður, enda sé viðkomandi sveinn því samþykkur.
Bókun vegna verkfæragjalds rafvirkja:
Samhliða breytingu á deilitölu fyrir dagvinnu og upptöku yfirvinnu 1 og 2 þann 1. apríl 2020 breytist verkfæralisti rafvirkja þar sem tiltekin slitverkfæri (yfirstrikuð a lista) falla út og verkfæragjald reiknast sem hlutfall af dagvinnukaupi. Á sama tíma hækkar verkfæragjaldið í 6,0 %.
Það er sameiginlegur skilningur samningsaðila að ekki sé greitt verkfæragjald í veikindum eða á lögbundnum frídögum (rauðum dögum).